Jón G. Guðjónsson | föstudagurinn 24. nóvember 2006
Prenta
Flutningabíll frá KSH með fóðurbæti.
Sigurður Vilhjálmsson yngri kom á flutningabíl frá Kaupfélagi Steingrímsfjarðar nú um hádeygið með fóðurbætir til þeirra bænda hér í Árneshreppi sem versla hjá kaupfélaginu.
Tveir eða þrír bændur höfðu fengið fóðurbæti með Strandafrakt fyrr í haust.
Þetta er óvenju seint sem KSH sendir bíl með fóðurbæti norður.
Ágætis færð er nú norður í Árneshrepp og hefur verið það síðustu viku,þótt snjóþekja sé yfir öllu.