Fleiri fréttir

Jón G. Guðjónsson | þriðjudagurinn 1. desember 2009 Prenta

Formleg úthlutun menningaráðs verður í Hlunnindasafninu á Reykhólum.

Jón Jónsson menningafulltrúi Vestfjarða.Mynd strandir.
Jón Jónsson menningafulltrúi Vestfjarða.Mynd strandir.
Seinni úthlutun Menningarráðs Vestfjarða á árinu 2009 fer fram í Hlunnindasafninu á Reykhólum nú á föstudaginn 4. desember og hefst athöfnin kl. 16:00. Verða þar afhent vilyrði um styrki frá Menningarráði Vestfjarða, en alls fá 37 verkefni framlög að þessu sinni á bilinu 150 þúsund til 1 milljón, samtals að upphæð 18,5 milljón. Umsóknir sem bárust að þessu sinni voru 89 og var samtals beðið um 75 milljónir í verkefnastyrki.

Styrkirnir fara til margvíslegra verkefna sem sýna að sóknarhugur og bjartsýni eru ríkjandi í vestfirsku menningarlífi, þrátt fyrir þrengingar og niðurskurð á fjölmörgum sviðum í samfélaginu. Öllum styrkumsóknum sem bárust hefur verið svarað í tölvupósti á þau netföng sem gefin voru upp í umsóknum með niðurstöðu hvað varðar einstakar umsóknir. Heildarlisti um styrkt verkefni verður birtur á vef Menningarráðsins og sendur fjölmiðlum eftir athöfnina á Reykhólum. Menningarráð Vestfjarða mun næst auglýsa eftir umsóknum um styrki fljótlega á nýju ári.

Athöfnin er opin öllum og þeir sem standa í eldlínunni í menningarstarfi á Vestfjörðum og sveitarstjórnarmenn eru sérstaklega boðnir velkomnir. Á dagskrá eru erindi og afhending styrkja og í lokin á þessari formlegu athöfn verður boðið upp á léttar veitingar

Athugasemdir

Atburðir

« 2024 »
« Júlí »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31      

Úr myndasafni

  • Fyrsta skófustúngan.Hrafn-Guðbjörg.22-08-08.
  • Naustvík 17-08-2008.
  • Síldarverksmiðjan Eyri í Ingólfsfirði.Mynd Jóhann.
  • Járnabinding er komin í grunn.29-09-08.
  • Sigursteinn hifir plötur á þak,á þaki eru-Gulli Hrafn og Íngólfur.
Vefumsjón