Fleiri fréttir

Jón G. Guðjónsson | sunnudagurinn 25. mars 2018 Prenta

Fósturvísatalning-Ómskoðun.

Þessi er greinilega tvílembd, segir Guðbrandur.
Þessi er greinilega tvílembd, segir Guðbrandur.
1 af 2

Í dag er verið að ómskoða fé hjá bændum í Árneshreppi á fjórum bæjum af fimm sem eru með fjárbúskap. Það er á Melum, Steinstúni, Árnesi og í Litlu-Ávík, Kjörvogs bændur hafa aldrei látið ómskoða. Ómskoðunin er til að telja fósturvísa í ám til að vita hvaða ær verði tvílembdar eða einlembdar og jafnvel þrílembdar  eða hvað er mikið gelt, á komandi vori í sauðburðinum. Við talninguna  er  notuð ómsjá. Guðbrandur  Þorkelsson bóndi  að Skörðum í Dalasýslu sér um ómskoðunina eða talninguna. Guðbrandur vinnur mikið við þetta í sinni heimasveit og víðar. Ljóst er að með slíkri talningu  er hér á ferðinni tækni sem fyrir fjölmörg fjárbú sýnist vera ákaflega áhugaverð til að nýta. Augljósustu nýtingamöguleikar tengjast skipulagningu fóðrunar á síðari hluta meðgöngutíma ánna auk þess sem að slík vitneskja á víða að geta skapað mikla möguleika til að skipuleggja alla vinnu á sauðburði. Þetta er áttunda árið í röð sem bændur hér í Árneshreppi láta ómskoða til að telja fósturvísa.

Athugasemdir

Atburðir

« 2026 »
« Október »
S M Þ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31

Úr myndasafni

  • Frá saumaklúbb á Krossnesi 18 febrúar 2012.
  • Hrafn og Úlfar glaðbeittir á svip.08-11-08.
  • Jón Guðbjörn og Úlfar ræða málin.
  • Naustvík 17-08-2008.
  • Þessi eining komin á sinn stað.27-10-08.
  • Finnbogastaðir brenna,16-06-2008.
Vefumsjón