Fleiri fréttir

Jón G. Guðjónsson | laugardagurinn 3. nóvember 2012 Prenta

Fundir vegna sóknaráætlunar Vestfjarða.

Fundur verður á Hólmavík 7 nóvember.
Fundur verður á Hólmavík 7 nóvember.
Á 57. Fjórðungsþingi Vestfirðinga sem haldið var á Bíldudal dagana 4. og 5. október sl. var Atvinnuþróunarfélagi Vestfjarða falið að vinna að „Sóknaráætlun Vestfjarða" og að þeirri vinnu skyldi lokið 15. nóvember nk. sbr. áður gerða samþykkt þingsins. Unnar verði þrjár minni sóknaráætlanir fyrir hvert svæði Vestfjarða, Norðursvæði, Suðursvæði og Reykhóla og Strandir. Þær verði svo teknar saman og úr þeim gerð ein heildstæð sóknaráætlun fyrir Vestfirði.

Strax í framhaldi af 57. Fjórðungsþingi Vestfirðinga verði leitað til Atvinnuþróunarfélags Vestfirðinga um að vinna að sóknaráætlun þessara þriggja svæða, í náinni samvinnu við framkvæmdastjóra sveitarfélaganna. Þeirri vinnu skal lokið og skilað til skrifstofu Fjórðungssambands Vestfirðinga eigi síðar en 15. nóvember n.k.

Þann 19. nóvember n.k. skal samráðsvettvangur Sóknaráætlunar Vestfjarða kallaður saman og fara yfir þá vinnu sem liggur fyrir og í framhaldi af því skipa framkvæmdaráð sem vinnur að Sóknaráætlun Vestfjarða.

Lokatillaga að sóknaráætlun verður svo send samráðsvettvanginum þann 1. desember n.k. til umræðu og umsagnar, lokaskjal verði svo birt 15. desember 2012." Fundir verða á eftirtöldum stöðum:

Félagsheimilinu á Patreksfirði þriðjudaginn 6. nóvember 2012 kl. 10.00 - 15.00

Stjórnsýsluhúsinu á Ísafirði miðvikudaginn 7. nóvember nk. efstu hæð 10.00 - 15.00

Hnyðja  á Hólmavík miðvikudaginn  7. nóvember nk. kl. 10.00 - 15.00

Athugasemdir

Atburðir

« 2024 »
« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Úr myndasafni

  • Séð að Felli 15-03-2005.
  • Íshrafl við Selsker 22-08-2009.
  • Súlan sem er 18,5 m löng komin á flot.
Vefumsjón