Jón G. Guðjónsson | þriðjudagurinn 14. september 2010
Prenta
Fyrsta féð fór í slátrun í gær.
Bændur settu fyrstu lömbin í slátrun í gær þegar fimm bílar komu að sækja fé,því fé verður slátrað í dag.
Í dag komu tveir bílar að sækja fé,því fé verður slátrað á morgun,er þá búið að setja fé í slátrun af öllum bæjum í Árneshreppi.
Bændur láta slátra á Blönduósi eða á Hvammstanga.
Það er í sláturhúsi KVH ehf á Hvammstanga og í sláturhúsi SAH afurða ehf á Blönduósi.