Fleiri fréttir

Jón G. Guðjónsson | laugardagurinn 1. febrúar 2014 Prenta

Fyrsti saumaklúbbur vetrarins.

Konur við hannyrðir.
Konur við hannyrðir.
1 af 3

Í gærkvöld var haldinn fyrsti saumaklúbbur vetrararins nú á Melum hjá Bjarnheiði Fossdal og Birni Torfasyni. Klúbburinn var vel sóttur í gærkvöldi. Saumaklúbbarnir í Árneshreppi eru sérstakir að því leyti að karlmönnum er boðin þátttaka einnig,og spila annað hvort bridds eða vist,eða jafnvel tekin skák ef þannig stendur á fjölda við spilin. Þá eru konur við sauma eða aðra handavinnu. Þessir klúbbar eru búnir að tíðkast til margra áratuga og á meðan fleira fólk var í sveitinni voru klúbbarnir tvískiptir,það er klúbbar voru haldnir bæði í norðurhluta hreppsins og austari hlutanum þá ver skipt við Melabæina. Oftast koma allir sem geta og eiga heimangegnt,ungir sem aldnir. Klúbbarnir hefjast yfirleitt í janúar og standa fram á vor,og eru yfirleitt haldnir á tveggja vikna fresti,en annars fer það líka eftir veðri og færð. Þetta er eitt af því fáa sem gert er hér í þessari fámennu sveit Árneshreppi til að koma saman. Alltaf eru veisluborð hjá þeim konum sem halda saumaklúbbana í lok samkomunnar.

Athugasemdir

Atburðir

« 2023 »
« Mars »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Úr myndasafni

  • Gunnsteinn Gíslason.
  • Húsið 29-10-08.
  • Gengið upp Sýrárdal.
  • Gislína-Júlíana-Vilhjlálmur og Eysteinn.
Vefumsjón