Fleiri fréttir

Jón G. Guðjónsson | sunnudagurinn 1. febrúar 2015 Prenta

Fyrsti saumaklúbburinn í vetur.

Konur tóku sér pásu frá hannyrðum til myndatöku,og góður brandari sagður.
Konur tóku sér pásu frá hannyrðum til myndatöku,og góður brandari sagður.
1 af 4

Í gærkvöld var haldinn fyrsti saumaklúbbur vetrarins 2015. Nú riðu Krossneshjón á vaðið,þau Oddný S Þórðardóttir og Úlfar Eyjólfsson. Klúbburinn var vel sóttur í gærkvöldi,en það voru ekki allar konur sem eru vanar að vera,vegna þess að þær voru í burtu. Þannig að karlar voru í meirihluta.

Saumaklúbbarnir í Árneshreppi eru sérstakir að því leyti að karlmönnum er boðin þátttaka einnig,og spila annað hvort bridds eða vist,eða jafnvel tekin skák ef þannig stendur á fjölda við spilin. Þá eru konur við sauma eða aðra handavinnu. Þessir klúbbar eru búnir að tíðkast til margra áratuga og á meðan fleira fólk var í sveitinni voru klúbbarnir tvískiptir,það er klúbbar voru haldnir bæði í norðurhluta hreppsins og austari hlutanum þá ver skipt við Melabæina. Oftast koma allir sem geta og taka þátt sem eiga heimangegnt,ungir sem aldnir. Klúbbarnir hefjast yfirleitt í janúar og standa fram á vor,og eru yfirleitt haldnir á tveggja vikna fresti,en annars fer það líka eftir veðri og færð. Þetta er eitt af því fáa sem gert er hér í þessari fámennu sveit Árneshreppi til að koma saman. Alltaf eru veisluborð hjá þeim konum sem halda saumaklúbbana í lok samkomunnar.

Athugasemdir

Atburðir

« 2023 »
« Mars »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Úr myndasafni

  • Allar stærri sperrur komnar á sinn stað.29-10-08.
  • Daníél Sigurðsson-Elsa Gísladóttir og Snati.12-06-2008.
  • 21-09-2022.Borgarísjaki CA. 10 KM. NNA af Reykjaneshyrnu, eða CA. 15 KM. Austur af Sæluskeri. Virðist strandaður.
  • Búið að klæða útskotið þar sem eldhúsið er.03-12-2008.
  • Afmælisbarnið síunga ásamt gestum.
Vefumsjón