Fleiri fréttir

Jón G. Guðjónsson | föstudagurinn 26. september 2014 Prenta

Fyrsti snjór í fjöllum.

Örkin 634 m. Snjór náði niðurfyrirr 200 metra.
Örkin 634 m. Snjór náði niðurfyrirr 200 metra.
1 af 2

Í morgun var komin fyrsti snjór í fjöll hér í Árneshreppi,og víðar sjálfsagt. Vindur gekk til norðlægrar vindáttar í gærkvöld og í nótt og orðin hvass í morgun 12 til 15 m/s og hitinn um 4 stig. Allmikil úrkoma var í nótt og í morgun,mikil rigning á stundum,enda var mesta úrkoman eftir nóttina á veðurstöðinni í Litlu-Ávík 14,5 mm,og næst mest var á Sauðanesvita 10,4 mm. Nú fyrir hádegið er farið að draga mikið úr úrkomunni. Úrkoman fellur sem rigning niður við sjó og á láglendi,en ofan við tvö hundruð metra sem slydda eða snjór. Í morgun náði snjór í fjallinu Örkinni,sem er notuð sem mælikvarði fyrir snjó til fjalla á veðurstöðinni í Litlu-Ávík,auð fjöll,fleklótt eða alhvít,niður fyrir 200 metra og víðar neðar hlé megin við fjöll. Meðfylgjandi myndir eru teknar klukkan rúmlega níu í morgun.

Athugasemdir

Atburðir

« 2024 »
« Maí »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Úr myndasafni

  • Höfnin í Norðurfirði 16-03-2005.
  • Veghefill við mokstur 07-04-2009.
  • Lagðar lagnir í grunn.24-09-08.
  • Gunnsteinn Gíslason.
  • Slegið upp fyrir grunni.04-09-08.
  • Söngur.
Vefumsjón