Jón G. Guðjónsson | mánudagurinn 8. júní 2015
Prenta
Gjögurflugvelli lokað frá 22. júní 2015.
Samið var við Borgarverk ehf í Borgarnesi vegna útboðs við framkvæmdirnar á Gjögurflugvelli, það er að setja bundið slitlag yfir brautina ásamt nýjum ljósabúnaði. En rafvirkjar Isavia setja upp og tengja ljósabúnaðinn. Flugvellinum á Gjögri verður lokað fyrir allri flugumferð mánudaginn 22. júní 2015 kl.06:00 að morgni og til miðnættis þann 16. ágúst 2015.