Fleiri fréttir

Jón G. Guðjónsson | föstudagurinn 15. febrúar 2013 Prenta

GóGó píurnar Strandamenn ársins 2012.

GóGó píurnar Strandamenn ársins 2012.
GóGó píurnar Strandamenn ársins 2012.
Unglingahljómsveitin Gógó píurnar voru efst í kjörinu um Strandamann ársins 2012. Hljómsveitin er skipuð þeim Brynju Karen Daníelsdóttur, Gunnu Arndísi Halldórsdóttur, Margréti Veru Mánadóttur, Söru Jóhannsdóttur og Fannari Frey Snorrasyni. Mjög góð þátttaka var í kjörinu. Aðrir sem kepptu til úrslita í annarri umferð kosningarinnar voru Björn Kristjánsson á Drangnesi (Borkó), Ester Sigfúsdóttir á Kirkjubóli og Viðar Guðmundsson í Miðhúsum. Þau fengu öll tilnefningar sínar fyrir framlag til menningar og mannlífs á Ströndum. Nánar á www.strandir.is

Athugasemdir

Atburðir

« 2026 »
« Apríl »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30    

Úr myndasafni

  • Borgarísjaki með tvo tinda er NNV við Reykjaneshyrnu ca 18 KM frá landi.26-08-2018.
  • Saumaklúbbur á Krossnesi 05-01-2007.
  • Gislína-Júlíana-Vilhjlálmur og Eysteinn.
  • Margrét Jónsdóttir og Gunnsteinn Gíslason.
Vefumsjón