Jón G. Guðjónsson | sunnudagurinn 8. apríl 2012
Prenta
Hafísinn 25 sjómílur NNV af Straumnesi.
Í gærkvöldi var ísinn næst landi tæpar 25 sjómílur NNV af Straumnesi samkvæmt samantekt Ingibjargar Jónsdóttur dósent í landfræði hjá Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands. Ekki er ólíklegt að íshrafl hafi verið eitthvað nær landi.
Samkvæmt veðurspám verða NA áttir ríkjandi næstu daga þannig að hann ætti ekki að verða til vandræða,og ætti því frekar að fjarlægast aftur.