Helstu framkvæmdir í Árneshreppi.
Hér verður reynt að fara yfir helstu framkvæmdir í Árneshreppi á árinu 2014. Ekki verður þetta tæmandi upplýsingar,eitthvað mun vanta. Fyrst skal nefna sem hlýtur að teljast ein stærsta framkvæmdin er þegar Björgunarsveitin Strandasól réðist í byggingu húss yfir starfssemi sína í haust. Húsið sem er stálgrindarhús 150 fermetrar og var gert fokhelt,en eftir er að leggja í gólf og öll innivinna er eftir.
Á Djúpavík var í sumar byrjað að leggja tjörudúk á þak gömlu síldarverksmiðunnar,sem bræddur er á þakið í lögum. Þessi dúkur kom í stað þess að áður fyrr var þakið bikað eða tjargað. Hluti þaksins var tekin í sumar en á næsta ári stendur til að taka þakið sem snýr til norðurs,en það er um 1200.fm. Á Hótel Djúpavík var eldhús tekið algerlega í gegn og tæki endurnýjuð að miklu leyti.
Í Litlu-Ávík voru fengnir smiðir frá Sparra ehf í Keflavík til að klæða gafl og hliðar á aðalfjárhúsunum með aluzink bárujárni,einnig var skipt um glugga í húsunum og hurðir endurnýjaðar. Einnig settu smiðir upp iðnaðarhurð í Sögunarskemmuna að norðanverðu,en hún er rafmagnsdrifin.
Á Krossnesi voru steypuskemmdir lagaðar á grunni á skemmu. Einnig var þar seint í haust skipt um hluta af þakjárni á fjárhúsum þar.
Sveitarfélagið Árneshreppur stóð að ýmsu viðhaldi á sínum eignum,til dæmis á félagsheimilinu þar sem var skipt um glugga og eða lagaðir og þar var skipt um útihurð. Í kennara íbúð Finnbogastaðaskóla var baðherbergi alveg endurnýjað,og ýmislegt annað viðhald þar. Einnig lét sveitarfélagið setja upp tvær iðnaðarhurðir á sjávarhúsið í Norðurfirði,þær eru rafmagnsdrifnar. Ýmislegt annað lét sveitarfélagið gera í viðhaldi eins og á íbúðum í kaupfélagshúsinu eins og þau hús eru kölluð,en sveitarfélagið á þær eignir.
Ísavía var með framkvæmdir á Gjögurflugvelli,þar var settur nýr neysluvatnstankur og miklu stærri en var,einnig var rifin gömul klæðning í biðsal og sett ný klæðning og flugstöðin máluð að innan,flugstöðin var máluð að utan í fyrra.
Ferðafélag Íslands lét setja nýjan neyðarútgang á hús sitt á Valgeirsstöðum á Norðurfirði í haust.
Eins og áður sagði er þetta ekki tæmandi skírsla ,sjálfsagt hafa sumarhúsaeigendur verið að dytta að sínum húsum í sumar,mála eða með ýmislegt viðhald á húsum sínum.