Fleiri fréttir

Jón G. Guðjónsson | þriðjudagurinn 19. desember 2017 Prenta

Hugum að jólaljósum og rafmagnsöryggi.

Úti jólatré.
Úti jólatré.

Á vef Orkubús Vestfjarða kemur fram að fólk þurfi að athuga vel með skreytingar á jólatrjám og öðrum skreytingum sem eru með rafmagnsljós. Framundan er hátíð ljóss og friðar. Að mörgu þarf að hyggja og eitt af því er  að huga vel að jólaljósum, skreytingum og rafmagnsöryggi. Rafmagn er stórvirkur brennuvargur og á hverju ári verða eldsvoðar, sem eiga upptök sín í rafbúnaði.

Atriði sem vert er að hafa í huga:

Látum aldrei loga á ljósunum á jólatrénu. yfir nótt eða þegar við erum að heiman.

Hendum gömlum jólaljósum sem eru úr sér gengin.

Notum ætíð ljósaperur af réttri gerð, stærð og styrkleika.

Gætum þess að brennanleg efni séu ekki nálægt jólaljósum.

Ó varinn rafbúnaður getur valdið raflosti.

Vörum okkur á ó vönduðum jólaljósum.

Inniljós má aldrei nota utandyra.

Förum eftir leiðbeiningum um uppsetningu og notkun.

Látum logandi kerti aldrei standa ofan á raftæki.

Góður siður er að skipta um rafhlöður í reykskynjörum fyrir hver jól.

Mannvirkjastofnun hefur nýlega birt gagnlegar upplýsingar um jólaljós og rafmagnsöryggi. Orkubú Vestfjarða ráðleggur viðskiptavinum sínum og  landsmönnum öllum að kynna sér vel þessar leiðbeiningar.

Athugasemdir

Atburðir

« 2024 »
« Mars »
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Úr myndasafni

  • Bær í Trékyllisvík-19-08-2004.
  • Jóhanna Þ Þorsteinsdóttir.Skólastjóri frá 2004 til 2007.
  • Elín Agla Briem Skólastjóri frá 2007 til 2010.
  • Ís í Trékyllisvík 15-03-2005.
  • Þórólfur Guðfinnsson.
Vefumsjón