Jón G. Guðjónsson | mánudagurinn 27. október 2008
Prenta
Húsið reist á Finnbogastöðum.
Á þriðjudaginn 21 komu tveir smiðir til Guðmundar bónda á Finnbogastöðum til að undirbúa að reisa húsið.
Allar myndirnar eru teknar í kvöld.
Meyra á morgun.
Fyrst voru settir þéttilistar á sökkul undir fótstykkin og þaug fest niður og ýmislegt annað undirbúið.
Síðan spilaði óveður í framkvæmdir og öllu seinkaði um helgina 24 til 26 október.
Á mánudaginn 27 var komið hið sæmilegasta veður og þá átti að byrja að reisa,en Ágúst Guðjónsson kranamaður komst ekki landleiðina frá Hólmavík,því Vegagerðin opnar ekki norður á mánudögum,og varð hann að fara suður til Reykjavíkur og taka flugið norður á Gjögur þaðan,hann átti bílinn á staðnum fyrir norðan.
Þá var fljótt hafist handa og byrjað að hífa einingarnar á grunninn og festa niður og veggeiningum var búslað samam hverri af annari langt fram á kvöld í hægviðri,en talsverðum éljum.
Enn er verið að vinna þegar þetta er skrifað,en svona við það að ganga frá.Allar myndirnar eru teknar í kvöld.
Meyra á morgun.