Jón G. Guðjónsson | þriðjudagurinn 5. janúar 2010
Prenta
Ístungan sem tilkynnt var um í gær var ský.
Eftir að hafa kannað vel gervihnattamyndir frá því í gær þá bendir allt til þess að það sem var talið líkleg ístunga, sé í raun ský.
Gervihnattamynd frá því fyrr um daginn, þ.e. 4. jan. kl. 10:59 sýnir ísröndina vel (sjá mynd hér með frétt). Þar sést að ísröndin er um 30 til 40 sml V og NV af Vestfjörðum. Ísspangir og rastir geta þó verið nær. Einnig er rétt að minna á að ísröndin er um 18 sml N af Hælavíkurbjargi.
Næstu daga verður vestlæg átt ríkjandi og því má gera ráð fyrir að ísröndin færist nær landi.Sjófarendur eru beðnir um að fara að öllu með gát á svæðinu.
Þetta kemur fram á vef um hafístilkynningar Veðurstofu Íslands.
Einnig er hér Envisat ratsjármynd frá því kl:12:11 frá Jarðvísindastofnun HÍ.