Jólahlaðborð á Grand Hótel.
Fréttatilkynning frá Grand Hótel Reykjavík:
Guðrún Gunnarsdóttir og Jón Ólafsson munu flytja íslensk og erlend jólalög, á föstudags- og laugardagskvöldum. Bjarni Ara verður með glæsilega söngdagskrá í Hvammi og Setri og mun hann flytja vel valda jólasöngva og góða slagara með Frank Sinatra, Tom Jones og Elvis Presley svo eitthvað sé nefnt. Hinn fjölhæfi tónlistarmaður Reynir Sigurðsson mun töfra fram jólatóna á píanó og vibrafón og hin óborganlega hljómsveit Hafrót mun spila fyrir dansi. Hlaðborðið er að vanda vel útilátið með jólalegum forréttum, köldum og heitum aðalréttum með sósum og meðlæti og girnilegt eftirréttahlaðborð að hætti matreiðslumeistaranna.
Jólahlaðborðið er á kvöldin á föstudögum, laugardögum og sunnudögum og einnig í hádeginu á föstudögum. Hópar geta pantað jólahlaðborðið aðra daga.