Jón G. Guðjónsson | fimmtudagurinn 27. ágúst 2015
Prenta
Kaffi Norðurfjörður lokar.
Nú eru þær stöllur, Lovísa og Sara að ganga frá og loka á Kaffi Norðurfirði. „ Þær sega sumarið hafa verið allsæmilegt þrátt fyrir þessa leiðindu tíð í sumar, nóg af ferðafólki bæði íslenskum sem erlendum. Sara og Lovísa hafa séð um allan mat fyrir starfsfólk Borgarverks á meðan á framkvæmdum stóð á Gjögurflugvelli. Þær tóku kaffistaðin á leigu til þriggja ára en með uppseganlegum samning. Þær reikna nú með að verða með Kaffi Norðurfjörð næsta sumar, og vonandi verði betra og hlýrra veður þá með blóm í haga. Okkur hefur fundist gott að vera hér í Árneshreppi í sumar, og segjast þakka fyrir sumarið, og vonandi sjáumst við öll hress í júní á næsta ári, segja þær Sara og Lovísa.“