Jón G. Guðjónsson | fimmtudagurinn 15. nóvember 2018
Prenta
Komin í póstinn aftur.
Jón Guðbjörn Guðjónsson í Litlu-Ávík hefur nú um síðustu mánaðamót tekið við öllum pósti í Árneshreppi, það er bréfhirðingu og að dreifa pósti á bæina og sér um póststöðina á Norðurfirði fyrir Íslandslandspóst ohf. Jón hætti akkurat fyrir ári síðan og Ólafur Valsson tók við póstinum þegar hann opnaði verslunina á Norðurfirði. Hann tolldi ekkert við það frekar en að vera í versluninni. Eva Sigurbjörnsdóttir oddviti var með póstinn í sumar en getur ekki verið lengur enda nóg að gera á skrifstofu hreppsins. Íslandspóstur hafði svo strax í haust samband við Jón G að taka póstinn alveg yfir, og lét Jón undan þrýstingi og tók við öllu 1 nóvember síðastliðin fyrir póststöðina 524 Árneshreppur. „ Ég er bara endurvakin póstur aftur segir Jón G.“