Fleiri fréttir

Jón G. Guðjónsson | föstudagurinn 11. júní 2021 Prenta

Ljóðamála á almannafæri / / Ljóðamyndbandahátíð í allt sumar.

Arnheiður Eiríksdóttir og Ásgeir H Ingólfsson kynna ljóðadagskrána á skjánum.
Arnheiður Eiríksdóttir og Ásgeir H Ingólfsson kynna ljóðadagskrána á skjánum.
1 af 3

Ljóðamála á almannafæri er ljóðamyndbandahátíð sem hefst þann 15. júní á N4. Þar er ljóðskáldum og kvikmyndagerðarmönnum stefnt saman til að búa til ljóðahátíð fyrir sjónvarp og net.

Slíkt stefnumót átti upphaflega að verða lítill hluti af stærri ljóðahátíð á Norðurlandi síðasta haust – en nokkrar covid-bylgjur komu í veg fyrir þá hátíð og því ákváðum við að breyta algjörlega um kúrs og leggja frekar alvöru metnað í myndvinnsluna, frekar en að bíða bara eftir að geta lesið upp fyrir framan fólk.

Niðurstaðan varð sjö þátta sería með 14 ljóðskáldum og 7 leikstjórum sem sýnd verður á N4 í sumar, auk þess sem efnið mun einnig birtast á smygl.is í bland við alls kyns viðbótarefni. Sýningar munu hefjast þann 15. júní næstkomandi.

Ljóðskáldin sem koma fram eru eftirfarandi:

Akureyrarskáldin Arnar Már Arngrímsson, Eyþór Gylfason, Sesselía Ólafs, Vilhjálmur B. Bragason og Ásgeir H Ingólfsson, að sunnan koma svo þau Bergþóra Snæbjörnsdóttir, María Ramos, Loki, Soffía Bjarnadóttir, Þórdís Helgadóttir og Ásta Fanney Sigurðardóttir. Fulltrúar umheimsins eru svo hin tékkneska Tereza Riedlbauchová, Jonas Gren frá Svíþjóð og Vestur-Íslendingurinn Darrell Jónsson frá Bandaríkjunum.

Ilona Gottwaldova, Eiríkur Örn Norðdahl og Ásgeir H Ingólfsson sjá um að þýða ljóð þeirra síðastnefndu og munu þau öll birtast á skjánum líka, enda löngu tímabært að gera þýðendur aðeins sýnilegri.

Kvikmyndagerðarmennirnir sem færa okkur ljóðskáldin heim í stofu eru svo eftirfarandi:

Kári Liljendal, Magnea Björk Valdimarsdóttir, Atli Sigurjónsson, Haukur Valdimar Pálsson,

Hallur Örn Árnason, Gunnlaugur Starri Gylfason og Darrell Jónsson.

Darrell sá líka um upptöku í stúdíói í MeetFactory, þar sem Arnheiður Eiríksdóttir og Ásgeir H Ingólfsson kynna dagskrána.

Það er Ásgeir H Ingólfsson sem hefur yfirumsjón með þáttaröðinni. Framleiðendur eru Menningarsmygl og Urban Space Epics.

Carl Warwick samdi stef þáttanna út frá broti úr Völuspá.

Styrktaraðilar eru Miðstöð íslenskra bókmennta, Akureyrarbær og Landsbankinn.

Nánari upplýsingar um þættina gefur Ásgeir í síma 690 1827 eða í gegnum netfangið asgeirhi@gmail.com.

Hér fylgja svo kynningarstiklur, ein formleg og hin aðeins óformlegri.

Hér er official stiklan:

https://www.youtube.com/watch?v=RcMp-yXvYik&ab_channel=N4N4

Hér svo óður til rakara og ljóðlistar.

https://www.youtube.com/watch?v=4W9z4ZbANkY

 

Athugasemdir

Atburðir

« 2024 »
« Mars »
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Úr myndasafni

  • Ástbjörn smiður á einni hækju.08-11-08.
  • Drangajökull séð frá Litlu-Ávík.05-02-2008.
Vefumsjón