Fleiri fréttir

Jón G. Guðjónsson | miðvikudagurinn 12. desember 2012 Prenta

Ljósmyndabók.

Vestfirðir-Ljósmyndabók.Kom út í dag.
Vestfirðir-Ljósmyndabók.Kom út í dag.
Í dag,12. Desember, 2012 kemur út einstök ljósmyndabók frá Vestfjörðum. Bókin sem heitir einfaldlega Vestfirðir - Ljósmyndabók og í henni má finna yfir 100 ljósmyndir frá Vestfjörðum sem 50 Vestfirðingar hafa tekið. Bókin sem hefur verið slétt ár í vinnslu eru hugarsmíð,Eyþórs Jóvinssonar. Bókin byggist á því að safna saman 50 Vestfirðingum í eina bók, þar sem hver og einn fær eina opnu fyrir sínar myndir af Vestfjörðum. Vestfirðingar að mynda Vestfirði. Ljósmyndararnir eru jafnt áhuga- og atvinnumenn, þeir sem eru að stíga sín fyrstu skref í ljósmyndun og aðrir sem hafa myndað í yfir hálfa öld. Allt frá 15 ára stelpu til karla á besta aldri. Fyrir vikið verður bókin einstaklega fjölbreytt, myndefni margvíslegt og víðsvegar af Vestfjörðum. Til að mynda er áhugavert, þegar bókin er skoðuð að sjá hvað hafið skipar stóran sess í náttúru og menningu Vestfjarðar. Hafið kemur fyrir í 43 af 50 opnum bókarinnar og í bókinni má finna níu báta en ekki einn einasta bíl. Svo eitthvað sé nefnt. Bókin fer í sölu í Vestfirsku versluninni,Ísafirði og Mál og Menningu,Reykjavík í dag.

Bókin er styrkt veglega af Menningarráði Vestfjarða.

Athugasemdir

Atburðir

« 2026 »
« Júní »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Úr myndasafni

  • Hótel Djúpavík-16-08-2006.
  • Ásbjörn Þorgilsson grefur fyrir grunninum.22-08-08.
  • Gunnar-Steini-Sigursteinn og Gunnsteinn.
  • Grænhóll við Gjögur-05-07-2004.
  • Árnesstapar-Reykjaneshyrna í baksýn og Mýrahnjúkur frá Hvalvík séð.10-03-2008.
  • Kristján Albertsson bóndi Melum II.
Vefumsjón