Jón G. Guðjónsson | þriðjudagurinn 8. júlí 2014
Prenta
Ljósmyndasyningin STEYPA - Djúpavík.
Annað sumarið í röð er ljósmyndasyningin STEYPA haldin í gömlu, fallegu síldarverksmiðjunni í Djúpavík á Ströndum. Sjö íslenskir og erlendir ljósmyndarar deila með okkur því sem þeir upplifa á Íslandi og í landslaginu, með myndum, texta og hljóðum. Ókeypis er inn á sýninguna sem opin er daglega milli 09:00 og 18:00, frá 1. júní til 31. ágúst.