Málþing á Bíldudal 5 maí.
Þriðjudaginn 5. maí nk. kl. 17:00 til 20.00 verður málþing „Sókn í eflingu atvinnulífs á suðursvæði Vestfjarða". Það eru Atvinnumálanefndir Vesturbyggðar og Tálknafjarðarhrepps sem boðar til þingsins sem haldið verður í Félagsheimilinu Baldurshaga á Bíldudal. Þangað eru boðaðir fulltrúar starfandi fyrirtækja og fulltrúar lögbýla á suðursvæðinu. Fyrr í haust var gerð könnun meðal þeirra í Vesturbyggð og verða niðurstöður hennar m.a. kynntar á þinginu.
Málþingið er öllum opið.
Dagskrá:
- Mikilvæg verkefni fyrir atvinnuuppbyggingu á suðursvæði Vestfjarða.
Skjöldur Pálmason formaður stjórnar Atvinnuþróunarfélags Vestfjarða.
- Niðurstöður atvinnulífskönnunar í Vesturbyggð.
Shiran Þórisson hjá Atvinnuþróunarfélags Vestfjarða, kynnir niðurstöður könnunar sem gerð var meðal fyrirtækja í sveitarfélaginu og unnin var á vegum Atvinnuþróunarfélags Vestfjarða.
- Hver er sérstaða atvinnulífs á Vestfjörðum - Sérstaða Vestfjarða
Þorgeir Pálsson framkvæmdastjóri Atvinnuþróunarfélags Vestfjarða
- Möguleikar skapandi samfélags
Njörður Sigurjónsson lektor við Háskólann á Bifröst.
- Byggðaáætlun 2010 - 2013.
Aðalsteinn Óskarsson framkvæmdastjóri Fjórðungssambands Vestfjarða
- Efnahagsleg endurreisn á Vestfjörðum
Nýkjörinn fyrsti þingmaður NV - kjördæmis
- Rannsókna- og nýsköpunarsjóður á suðursvæði Vestfjarða
Úthlutunarreglur kynntar af fulltrúa stjórnar sjóðsins
Að loknum erindum verða umræður um atvinnumál á suðursvæði Vestfjarða, stöðu þeirra möguleika og framtíð.
- Kalkþörungaverksmiðjan á Bíldudal heimsótt.
Guðmundur Valgeir Magnússon kynnir starfsemi Kalkþörungaverksmiðjuna á Bíldudal. Jörundur Garðarsson kynnir nýtt fyrirtæki Hafkalk ehf.
Þinginu stjórnar sveitarstjóri Tálknafjarðarhrepps.
Við væntum þess að sem flestir sjái sér fært að koma og taka þátt í umræðunni.
Bestu kveðjur, Atvinnumálanefndir Vesturbyggðar og Tálknafjarðarhrepps.