Jón G. Guðjónsson | mánudagurinn 8. september 2008
Prenta
a. Nýsköpun á sviði lista og menningarstarfs.
b. Verkefni sem miða að fjölgun starfa.
c. Samstarf milli menningarstofnanna, byggðarlaga eða listgreina og uppsetning viðburða á fleiri en einum stað.
d. Útgáfa fræði- og ritverka sem lúta að menningu og sögu Vestfjarða.
e. Útgáfa mynd- og hljóðdiska sem hafa menningarlegt gildi og sýnilega sérstöðu.
Í september verða haldin námskeið um gerð styrkumsókna á vegum Menningarráðs Vestfjarða, þar sem menningarfulltrúi mun leiðbeina um gerð umsókna og eru umsækjendur hvattir til að fylgjast með og sækja slík námskeið ef þeir hafa kost á.
Bent er á að einungis hluti umsókna fær styrki og þá þurfa að fara saman góð verkefni og góðar umsóknir, því þær eru bornar saman og metnar á samkeppnisgrundvelli. Vandið til verka - þannig næst árangur.
Þetta kemur fram á www.vestfirskmenning.is
Menningarráð Vestfjarða auglýsir eftir styrkumsóknum.
Auglýst eftir umsóknum
Menningarráð Vestfjarða hefur ákveðið að við síðari úthlutun ársins 2008 verði litið sérstaklega til menningarverkefna sem fela í sér eftirtaldar áherslur:a. Nýsköpun á sviði lista og menningarstarfs.