Fleiri fréttir

Jón G. Guðjónsson | þriðjudagurinn 27. maí 2014 Prenta

Menningarráð Vestfjarða auglýsir eftir umsóknum – frestur til 13. júní.

Drangaskörð.
Drangaskörð.

Menningarráð Vestfjarða hefur nú auglýst eftir umsóknum um styrki á grundvelli menningarsamnings ríkisins við Fjórðungssamband Vestfirðinga og er frestur til að sækja um til og með föstudeginum 13. júní. Styrkir verða veittir í tveimur flokkum, annars vegar stofnkostnaðar- og rekstrarstyrkir til menningarstofnanna og hins vegar verkefnastyrkir til afmarkaðra menningarverkefna. Tilgangurinn er að efla menningarstarfsemi á Vestfjörðum og eru umsóknir og verkefni hverju sinni borin saman á samkeppnisgrundvelli við úthlutun. Umsækjendum er bent á að kynna sér vandlega úthlutunarreglur, en þær er að finna á vefsíðunni www.vestfirdir.is undir Menningarráð Vestfjarða -> Styrkir. Þar má einnig nálgast eyðublöð, bæði fyrir ritvinnslu og rafræn. Allar nánari upplýsingar gefur Jón Jónsson menningarfulltrúi Vestfjarða í síma 891-7372 eða í netfanginu menning@vestfirdir.is.

Athugasemdir

Atburðir

« 2023 »
« Mars »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Úr myndasafni

  • Báturinn Agnes fer ekki lengra inn og sleppir flotanum.
  • Víganes:Í október 2010.
  • Gengið upp Sýrárdal.
  • Borgarísjaki ca 4 til 5 km NA af Gjögurflugvelli 13-01-2005.
  • Við Litlu-Ávík 15-03-2005.
Vefumsjón