Fleiri fréttir

Jón G. Guðjónsson | fimmtudagurinn 10. júlí 2014 Prenta

Mikil aurskriða féll úr Árnesfjalli.

Mikið rykský myndaðist í fyrstu skriðunni.
Mikið rykský myndaðist í fyrstu skriðunni.
1 af 3

Á öðrum tímanum í dag féll gífurleg aurskriða úr Árnesfjalli norðanmegin niður í svonefnda Hvalvík. Björn Torfason bóndi á Melum segist hafa séð steina byrja að hrinja úr fjallinu fyrir hádegið í dag,svo á öðrum tímanum hafi bara allt farið á stað,engu líkara en fjallið hafi hreint og beint sprungið. Björn segir enn fremur hafa séð sex kindur í grasgeira fyrir neðan þar sem skriðurar féllu en ekkert sest til þeirra eftir það. Skriðurnar náðu niðrá veg í Hvalvíkinni en ekki í sjó fram. Talsverð skál er þarna upp í fjallinu sem gæti hafa verið full af vatni eftir rigningarnar undanfarna daga,og nú opnast og hleypt þessum skriðum á stað. En velta steinar fram og niður og drunur þarna upp í fjallinu. Vegagerðin hefur ekki þorað að láta opna veginn enn fyrir umferð. Fréttamaður litlahjalla var þarna á ferð um það leyti sem aðalskriðan féll.

Athugasemdir

Atburðir

« 2024 »
« Júlí »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31      

Úr myndasafni

  • Borgarísjaki út af Ávíkinni 07-04-2004
  • Slydda en áfram reist.27-10-08.
  • Helga og Hilmar.Helga var veislusjóri fyrir í afmæli ömmu sinnar,og Hilmar sá um músikina.
Vefumsjón