Jón G. Guðjónsson | þriðjudagurinn 16. ágúst 2011
Prenta
Mikil úrkoma.
Mikið hefur rignt hér á Ströndum síðan á sunnudagskvöld.Norðanátt hefur verið og síðan Norðvestan með kalda súld í fyrstu síðan mikilli rigningu.Á veðurstöðinni í Litlu-Ávík mældist úrkoman eftir nóttina í nótt 30,2 mm, og frá kl 18:00 á sunnudag til kl 09:00 í morgun hafa mælst samtals 66,8 mm og er það að slaga uppí meðaltals úrkomu í ágúst.Nú í morgunsárið er að draga loks úr úrkomunni og orðin meiri súld.Einnig rigndi mikið aðfaranótt þriðja ágúst þegar úrkoman mældist 39,0 mm eftir nóttina.Myndirnar voru teknar í gærkvöld.