Jón G. Guðjónsson | föstudagurinn 2. ágúst 2024
Prenta
Mikil úrkoma var í nótt.
Gífurleg úrkoma var frá því rétt fyrir miðnætti í gærkvöldi og í alla nótt. Úrkoman á veðurstöðinni í Litlu-Ávík mældist 44,6 mm síðasta sólarhring.
Samkvæmt vef Vegagerðarinnar fór vegurinn í Veiðileysufirði í sundur og skriða féll yfir veginn í Reykjarfirði. Unnið er að viðgerð.