Fleiri fréttir

Jón G. Guðjónsson | laugardagurinn 22. febrúar 2014 Prenta

Minnt á árshátið.

Forsala aðgöngumiða er í dag.
Forsala aðgöngumiða er í dag.

Formaður Félags Árneshreppsbúa bað vefinn að minna á forsölu aðgöngumiða á árshátíð Félagsins sem verður í dag laugardaginn 22. febrúar frá kl: 14:00 - 16:00 í sal Lionsklúbbsins Lundar sem staðsettur er í Auðbrekku 25-27 í Kópavogi. Árshátíðin fer svo fram laugardaginn 1. mars og verða veislustjórar Ellen Björnsdóttir frá Melum og Torfi Guðbrandsson en bæði eru þau barnabörn Torfa Guðbrandssonar, fyrrum skólastjóra við Finnbogastaðaskóla. Dagskrá kvöldsins er glæsileg en þar ber að nefna borðsöng og happdrætti, leikarinn Halldór Gylfason mun svo sjá um skemmtiatriðin og síðast en ekki síst ber að nefna hljómsveitina Blek og byttur sem munu leika fyrir dansi. Miðaverð fyrir þá sem ætla á borðhaldið og dansleikinn er 8500 kr.- En fyrir þá sem einungis ætla á dansleikinn er miðaverð 2500 kr.-

Athugasemdir

Atburðir

« 2024 »
« Nóvember »
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Úr myndasafni

  • Borgarísjaki er ca 4 km austur af Sæluskeri og annar borgarísjaki ca 5 km austur af honum.19-06-2018.
  • Hurð á geymslu NA,18-11-08.
  • Ásdís Thoroddsen bílstjóri og fararstjóri ásamt 11 erlendum ferðamönnum og Sigursteini í Litlu-Ávík.07-07-2011.
  • Frá saumaklúbb á Krossnesi 18 febrúar 2012.
Vefumsjón