Jón G. Guðjónsson | mánudagurinn 16. júní 2008
Prenta
Missti allt sitt í brunanum.
Ekki tókst að bjargja neinu úr brunanum á Finnbogastöðum í dag.
Guðmundur Þorsteinsson bóndi missti allt sitt,innbú fötin sín og perssónulega muni og húsið sjálft.
Guðmundur (Mundi)á nú bara fötin sem hann var í þegar hann bjargaðist út úr brennandi húsinu.
Einnig drápust tveir hundar sem voru í kjallaranum sem vildu ekki fara út fyrr í morgun,en heimiliskötturinn var í fjárhúsunum og bjargaðist.
Þegar slökkviliðin frá Hólmavík og Drangsnesi komu á staðin um 12:30 var ekkert hægt að gera,og ekki bætti úr að allhvass vindur var af norðaustri,15 til 17 m/s.
Nú um kaffileytið standa bara veggirnir og þak sígið.Húsið var steinhús en timburgólf og öll innrétting úr timbri.