Jón G. Guðjónsson | föstudagurinn 22. febrúar 2019
Prenta
Mokað í Árneshrepp í dag.
Vegagerðin á Hólmavík hóf mokstur norður í Árneshrepp í morgun og sögð þæfingsfærð nú seinnipartinn í dag. En er verið að moka snjóruðningum útaf.
Hvað þessi mokstur endist lengi veit raunverulega enginn, því spáð er allskonar veðri næstu daga með hvassviðri stundum, og kólnandi og hlýnandi á víxl, eftir veðurspá Veðurstofu Íslands.