Fleiri fréttir

Jón G. Guðjónsson | mánudagurinn 5. janúar 2015 Prenta

Mugison á Mölinni.

Mugison mun heiðra Strandamenn með nærveru sinni á Malarkaffi á Drangsnesi.
Mugison mun heiðra Strandamenn með nærveru sinni á Malarkaffi á Drangsnesi.

Önnur atlaga að þrettándu tónleikum Malarinnar verður gerð laugardagskvöldið 10. janúar, en eins og kunnugt var jólatónleikum Svavar Knúts aflýst vegna veðurs. Í þessari annarri útgáfu af þrettándu Mölinni ætlar enginn annar en Mugison að heiðra Strandamenn með nærveru sinni á Malarkaffi á Drangsnesi.

Mugison þarf ekki að kynna fyrir nokkrum manni. Hann hefur um árabil verið einn vinsælasti tónlistarmaður landsins og hafa plötur hans selst í bílförmum. Mugison vakti fyrst athygli árið 2003 þegar hann gaf út plötuna Lonely Mountain sem hann reiddi fram í heimasaumuðu umslagi. Tónlistargrúskarar voru ekki lengi að átta sig á að þarna var eitthvað alveg sérstakt á ferðinni og í fljótlega í kjölfarið snerti Mugison streng í hjarta íslensku þjóðarinnar sem hann hefur haldið í allar götur síðan. Eftir Lonely Mountain hafa komið út plöturnar Mugimama is this Monkeymusic?, Mugiboogie og nú síðast Haglél sem seldist í yfir 20 þúsund eintökum. Allar hafa þessar plötur fallið í mjúklega í kramið jafnt hjá hlustendum sem og gagnrýnendum.


Mugison kemur, eins og áður sagði, fram á Mölinni á Malarkaffi laugardagskvöldið 10. janúar. Venju samkvæmt mun Borko ríða á vaðið og flytja lög úr sinni smiðju í upphafi tónleikanna.

Tónleikarnir hefjast kl. 21:30 en húsið opnar hálftíma fyrr. 
Miðaverð er 2000 kr.

Athugasemdir

Atburðir

« 2024 »
« Júlí »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31      

Úr myndasafni

  • Þakjárn komið á mikið til á bílskúr,22-11-08.
  • Frá Gjögri sést til Grænhóls-Víganes og Kjörvogs.
  • Hrafn -og systkinin Guðbjörg og Guðmundur.22-08-08.
  • Húsið fellt.
  • Jón G Guðjónsson situr á jaka útá Hjallskerum. Mynd RAX.
  • Gamla vindmyllan við Karlshús á Gjögri bognaði svona í SV ofsaveðri 14-03-2011.
Vefumsjón