Myndlistarsýning í Gamla kaupfélaginu ( Gramverslun) á Þingeyri.
Sýningin Lýðveldið á eyrinni opnar laugardaginn 29. maí kl. 14 í húsnæði Gamla kaupfélagsins á Þingeyri, en það er eitt af elstu verslunarhúsum landsins byggt árið 1874.
Sýningin er hluti af stórum sýningargjörningi Kvennabraggans sem er hópur átta listamanna. Umfjöllunarefnið er sótt í ólíka afkima hins íslenska lýðveldis, tengsl okkar við menningu, náttúru og ólíkt rými sýningarstaðanna, sem gjarnan tengjast atvinnusögu þjóðarinnar.
Hópurinn hefur gert víðreist og sýnt í óhefðbundnu sýningarhúsnæði svo sem í hlöðu við Mývatn, í yfirgefnum verbúðum í Ingólfsfirði á Ströndum og í húsnæði gömlu ullarverksmiðjunnar að Álafossi. Sýningarnar standa í flestum tilfellum aðeins yfir eina helgi og hafa því yfir sér blæ gjörnings og því má líkja listamönnunum við farandverkamenn sem stoppa stutt á hverjum stað í stöðugri leit að nýjum verkefnum.
Upphaf samstarfs listamannanna má rekja til sýningarinnar ,,Lýðveldið Ísland" sem haldin var í Þrúðvangi, Álafosskvosinni árið 2004 og tileinkuð var 60 ára afmæli íslenska lýðveldisins.
Á laugardaginn verður boðið upp á léttar veitingar og harmonikkuleik og á sunnudag verður hægt að fylgjast með listamönnunum við vinnu sína. Allir eru boðnir velkomnir.
Sýningarverkefnið hlaut styrk frá Menningarráði Vestfjarða.
Opið er frá 29.maí og 30.maí 2010 á milli klukkan 14:00 til 18:00 báða dagana.
Listamennirnir sem sýna eru:
Anna Jóa, Bryndís Jónsdóttir,Guðbjörg Lind Jónsdóttir, HildurMargrétardóttir,
HlífÁsgrímsdóttir, Kristín Geirsdóttir, Kristín Jónsdóttir frá Munkaþverá, Ólöf Oddgeirsdóttir