Niðurstaða málþings um samgöngumál á Vestfjörðum.
Til málþingsins var boðað til að upplýsa ný stjórnvöld og þingmenn um áherslur Vestfirðinga í samgöngumálum. Fyrir liggur sú staðreynd að þéttbýlisstaðir á Vestfjörðum eru einu byggðarlögin á landinu sem ekki eru enn komin í heilsársvegasamband, hvorki á milli helstu þéttbýlisstaða né með öruggum tengingum inn á aðalþjóðvegakerfið.
Framsögu á málþingu fluttu fulltrúar sveitarfélaga á Vestfjörðum, fulltrúar frá atvinnulífi, (fiskeldi og ferðaþjónustu), innanríkisráðherra og vegamálastjóri.
Fram kom á málþinginu ;
- að tillaga að matsáætlun um Vestfjarðaveg 60 um Gufudalssveit hefur verið kynnt og fer í formlegan feril hjá Skipulagsstofnun á næstu vikum.
Samgöngunefnd Fjórðungssambands Vestfirðinga ítrekar fyrri ályktanir varðandi vegagerð á Vestfjarðavegi um Gufudalssveit, að umhverfismati verði lokið og fjármögnun tryggð svo uppbyggður heilsársvegur á láglendi verði að veruleika fyrir árslok 2018.
- vonir standa til að framkvæmdum sem nú standa yfir á Vestfjarðavegi 60, Kjálkafjörður - Eiði, verði lokið haustið 2014 sem er einu ári fyrr en áætlanir gerðu ráð fyrir.
- innanríkisráðherra staðfesti vilja stjórnvalda að standa við gildandi samgönguáætlun 2011-2022. Það staðfestir framkvæmdir við Dýrafjarðargöng verða á tímabilinu 2015-2018 og samhliða því að hafin verði veggerð um Dynjandisheiði.
- innanríkisráðherra staðfesti vilja um að stofna til samráðshóps um heilsárssamgöngur í Árneshrepp með aðkomu heimamanna.
- fundurinn undirstrikaði mikilvægi innanlandsflugs fyrir íbúa, atvinnulíf og þá sem sækja fjórðunginn heim og hvatti innanríkisráðherra til að tryggja framtíð þess.
- fundurinn gerði kröfu um að uppbygging fjarskipta verði hraðað. Þannig að nettening á Vestfjörðum verði eins og best gerist í landinu.
- Á fundinum töluðu fulltrúar atvinnulífsins þar sem fram kom mikilvægi samgangna fyrir uppbyggingu nýrra gjaldeyrisskapandi atvinnugreina eins og fiskeldis og ferðaþjónustu svo ekki sé minnst á viðgang og vöxt hefðbundinna atvinnugreina.
Allir þessir þættir eru mikilvægar grunnstoðir og skipta sköpum hvað varðar atvinnuuppbyggingu, búsetu og lífsgæði. Ekki eingöngu fyrir framtíð byggðar á Vestfjörðum heldur fyrir þjóðina alla.