Jón G. Guðjónsson | fimmtudagurinn 3. febrúar 2011
Prenta
Nýjar fréttir af Fjalla-Eyvindi og Höllu.
Fyrir skömmu komu í leitirnar á Þjóðskjalasafni áður ókunn skjöl um veru Eyvindar og Höllu í Drangavíkurfjalli á Ströndum, barnsfæðingu þar og handtöku vorið 1763. Einnig réttarhöld yfir þeim í Árnesi í Trékyllisvík og á Hrófbergi við Steingrímsfjörð sama vor og dómur sem upp var kveðinn á Broddanesi í Kollafirði 30. maí sama ár. Kjartan Ólafsson, fyrrverandi alþingismaður og ritstjóri, heldur fyrirlestur um þessa merku uppgötvun undir titlinum Nýjar fréttir af Fjalla-Eyvindi á Ströndum. Fyrirlesturinn verður í Skelinni-Þjóðfræðistofu laugardaginn 5 febrúar kl 16:00,og heitt verður á könnunni og allir velkomnir.Frá þessu er sagt á Strandir.is