Fleiri fréttir

Jón G. Guðjónsson | föstudagurinn 19. apríl 2013 Prenta

Nýr óháður kosningavefur fyrir almenning.

Ragnar Þór Valgeirsson vefsmiður, Kristján Ingi Mikaelsson forritari og Ásgeir Vísir grafískur hönnuður.
Ragnar Þór Valgeirsson vefsmiður, Kristján Ingi Mikaelsson forritari og Ásgeir Vísir grafískur hönnuður.
1 af 3

Ný, óháð vefsíða, www.kjosturett.is, er komin í loftið. Þar geta kjósendur fundið upplýsingar um stefnu allra þeirra 15 flokka og framboða sem bjóða fram lista til Alþingis í komandi kosningum 27. apríl.
 
Síðan tengist ekki neinum flokki, framboði eða stjórnmálahreyfingu. 
 
Síðan er hugsuð sem hlutlaus upplýsingamiðill um kosningar fyrir almenning í landinu. Mikið er lagt upp úr því að upplýsingarnar séu samræmdar og aðgengilegar. Á síðunni má finna stefnu framboðanna 15 í 11 málaflokkum, auk hagnýtra upplýsinga og tengla.
 
Slagorð síðunnar er: Taktu upplýsta ákvörðun - kjóstu rétt.
 
Þrír ungir menn standa að baki síðunni; Ragnar Þór Valgeirsson vefsmiður, Kristján Ingi Mikaelsson forritari og Ásgeir Vísir grafískur hönnuður.
Kristján Ingi og Ragnar Þór stunda nám við Verzlunarskóla Íslands en eru jafnframt liðtækir í vefsíðugerð. Þeir standa meðal annars að rafræna skiptibókamarkaðnum www.skipta.is.  Ásgeir Vísir er nýútskrifaður grafískur hönnuður og fyrrverandi nemi við Verzlunarskólann.
 
Kveikjan að síðunni var sú upplifun þeirra Ragnars Þórs, Kristjáns Inga og fleiri ungmenna, að erfitt væri að átta sig á stefnu allra þeirra flokka og framboða sem í boði eru. Þeir ákváðu að grípa til sinna ráða og bera saman flokka og framboð með skipulegum hætti. www.kjosturett.is er afrakstur þess.
 
Þeir Kristján Ingi og Ragnar Þór eru reiðubúnir að veita nánari upplýsingar eða viðtöl, hvort sem er um virkni síðunnar, hugmyndafræðina að baki eða hvernig Alþingiskosningarnar horfa við ungu fólki.
 
Kristján Ingi Mikaelsson: 696-4523
Ragnar Þór Valgeirsson: 663 9889
Ásgeir Vísir: 696 1647

Stefnt er að því að setja fram sambærilegar upplýsingar fyrir aðrar kosningar í framtíðinni, hvort sem er til sveitastjórna, forsetakosningar eða jafnvel Eurovision.

Athugasemdir

Atburðir

« 2024 »
« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Úr myndasafni

  • Klæðning komin á NV hlið.12-011-08.
  • Tekið á móti plötum á þaki 11-11-08.
  • Elín Agla Briem Skólastjóri frá 2007 til 2010.
Vefumsjón