Jón G. Guðjónsson | þriðjudagurinn 27. ágúst 2019
Prenta
Nýr verslunarstjóri.
Þann 24 ágúst síðastliðin tók Thomas Elguetjabal við af Árnýju Björk Björnsdóttir sem verslunarstjóri við Verslunarfélagi Árneshrepps í Norðurfirði. Árný var í allt sumar og raunverulega sá hún um að starta öllu á stað með vöruúrval í hinni nýju verslun. Hennar verður sárt saknað í versluninni, hún var svo hlýleg og liðleg við viðskiptavininna. Thomas sem nú hefur tekið við verslunarrekstrinum er frá Frakklandi og hefur verið að vinna á Kaffi Norðurfirði í sumar, hann verður allavega til áramóta. Þetta er dugnaðarmaður og á örugglega eftir að reynast vel í hinu nýja starfi.
Verslunin verður frá mánaðarmótum ágúst –september opin frá 13:00 og til 17:00.