Ómskoðun- fósturvísar taldir.
Í gær var verið að ómskoða fé hjá bændum í Árneshreppi á fjórum bæjum af fimm sem eru með fjárbúskap. Það er á Melum, Steinstúni, Árnesi og í Litlu-Ávík, Kjörvogs bændur hafa aldrei látið ómskoða. Ómskoðunin er til að telja fósturvísa í ám til að vita hvaða ær verði tvílembdar eða einlembdar og jafnvel þrílembdar eða hvað er mikið gelt, á komandi vori í sauðburðinum. Við talninguna er notuð ómsjá. Guðbrandur Þorkelsson bóndi að Skörðum í Dalasýslu sá um ómskoðunina eða talninguna. Guðbrandur vinnur mikið við þetta í sinni heimasveit og víðar. Ljóst er að með slíkri talningu er hér á ferðinni tækni sem fyrir fjölmörg fjárbú sýnist vera ákaflega áhugaverð til að nýta. Augljósustu nýtingamöguleikar tengjast skipulagningu fóðrunar á síðari hluta meðgöngutíma ánna auk þess sem að slík vitneskja á víða að geta skapað mikla möguleika til að skipuleggja alla vinnu á sauðburði. Þetta er sjöunda árið í röð sem bændur hér í Árneshreppi láta ómskoða til að telja fósturvísa.