Fleiri fréttir

Jón G. Guðjónsson | þriðjudagurinn 24. mars 2015 Prenta

Ómskoðun í Árneshreppi.

Guðbrandur við ómskoðun.
Guðbrandur við ómskoðun.
1 af 2

Í gær og í dag er verið að ómskoða fé hjá bændum í Árneshreppi. Flestir bændur í Árneshreppi láta telja fósturvísa í ám sínum til að vita hvaða ær verði tvílembdar eða einlembdar og jafnvel þrílembdar  eða hvað er mikið gelt,í vor í sauðburðinum. Við talninguna  er  notuð ómsjá. Guðbrandur  Þorkelsson bóndi  að Skörðum í Dalasýslu sér um ómskoðunina eða talninguna. Guðbrandur vinnur mikið við þetta í sinni heimasveit og víðar. Ljóst er að með slíkri talningu  er hér á ferðinni tækni sem fyrir fjölmörg fjárbú sýnist vera ákaflega áhugaverð til að nýta. Augljósustu nýtingamöguleikar tengjast skipulagningu fóðrunar á síðari hluta meðgöngutíma ánna auk þess sem að slík vitneskja á víða að geta skapað mikla möguleika til að skipuleggja alla vinnu á sauðburði. Þetta er sjötta árið í röð sem bændur hér í Árneshreppi láta ómskoða til að telja fósturvísa.

Athugasemdir

Atburðir

« 2023 »
« Mars »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Úr myndasafni

  • Njáll Gunnarsson og Gunnsteinn Gíslason.
  • Unnið við kjöljárn,Ástbjörn og Sigursteinn.18-12-2008.
  • Norðaustur hlið Mundi tilbúin með þakpappa á vél.12-11-08.
  • Borgarís útaf Ávíkinni 07-04-2004.
  • Jón Guðbjörn ætlar að fara að mæla sjávarhita. Mynd Kristín Bogadóttir.30-10-2015.
Vefumsjón