Fleiri fréttir

Jón G. Guðjónsson | þriðjudagurinn 30. apríl 2013 Prenta

Ótíð.

Í morgun 30. apríl er alhvít jörð.
Í morgun 30. apríl er alhvít jörð.
Það er óhætt að segja að ótíð hafi verið í apríl og er enn þótt sumar eigi að vera komið samkvæmt almanakinu. Kalt hefur verið hiti þó oft um frostmarkið en nú í mánaðarlok hefur gert hörkufrost á næturnar. Ekki lítur þetta vel út með tún hjá bændum,svellalög voru á þeim frá því snemma í haust og langt fram á vetur þegar gerði nokkurn blota seinnihluta febrúar,og tóku þá svell mikið til af túnum,og segja bændur að það gæti hafa bjargað einhverju um að yrði minna um kal á túnum. En síðan hefur verið umhleypingar og verið talsvert frost,og en sem komið er það aðeins blessuð sólin sem bræðir snjóinn aðeins yfir daginn. Ekki er mikill snjór á láglendi og væri hann fljótur að fara ef gerði einhver hlýindi. Nú styttist í sauðburð og byrjar hann yfirleitt um tíunda maí en á einhverjum bæjum fyrr,en allt er komið á fullt um miðjan maí. Hér í Árneshreppi ber allt fé á húsum,en gott væri að einhver gróður væri komin þegar lambfé er sett út á tún. Bændur eru bara hreint og beint uggandi út af þessari veðráttu sem hefur verið og virðist eiga að vera eitthvað áfram.

Athugasemdir

Atburðir

« 2023 »
« Mars »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Úr myndasafni

  • Frá höfninni á Norðurfirði 16-03-2005.
  • Njáll Gunnarsson og Gunnsteinn Gíslason.
  • Bakdyr SA hlið.18-12-2008.
  • Hafís í Trékyllisvík og séð til Norðurfjarðar.
Vefumsjón