Jón G. Guðjónsson | mánudagurinn 4. mars 2013
Prenta
Óveður næstu daga.
Norðan veðrið skall á hér á Ströndum í gærkvöldi fyrir alvöru,með Norðanátt fyrst og síðan Norðnorðaustan 20 til 30 m/s, og lítur út fyrir mjög slæmt veður mikið til út vikuna,með nokkru frosti og ofankomu og miklum sjógangi. Ekki lítur út fyrir flug á Gjögur næstu daga.
Veðurspáin fyrir Strandir og Norðurland vestra frá Veðurstofu Íslands í dag: Norðaustan 15-23 m/s, hvassast á annesjum. Snjókoma, en él í kvöld. Heldur hægari á morgun. Frost 3 til 10 stig. Veðurspá fyrir næstu daga má sjá hér. Og Norsku spána hér.