Jón G. Guðjónsson | föstudagurinn 21. desember 2018
Prenta
Póstflug í dag.
Flugfélagið Ernir flugu póstflug á Gjögur í hádeginu í dag. Þá er allur jólapóstur komin sem getur komið fyrir jól því þetta var síðasta flug fyrir jól. Næsta flug verður föstudaginn 28. Þokuloft hefur verið í gær og í morgun og gat því brugðist til beggja vona með flug í dag. Enn svo létti þokunni fyrir hádegið, en nú um þrjú er þokuloftið að síga niður aftur. Síðan kom kennsluflugvél rétt á eftir áætlunarvélinni.