Jón G. Guðjónsson | fimmtudagurinn 23. janúar 2020
Prenta
Rafmagn fór af.
Rafmagn fór af Árneshreppi á sjötta tímanum. Rofi sló út við Selá í Steingrímsfirði og tók tíma að keyra þangað frá Hólmavík og slá honum inn, og þá var allt í lagi og rafmagn kom á aftur klukkan hálf sjö. Rafmagnslaust var því í rúman klukkutíma.