Jón G. Guðjónsson | miðvikudagurinn 13. apríl 2011
Prenta
Rafmagn tekið af í dag.
Í dag mun Orkubú Vestfjarða á Hólmavík taka rafmagn af í Árneshreppi frá kl 13:30 til 16:30 ca vegna viðhaldsvinnu á Trékyllisheiði í dag.
Í dag verður unnið norðast á Trékyllisheiðinni og skipt um línu þar sem línan liggur fram af brúninni af heiðinni niðrí Kjós og spenna þar og stög og ýmislegt.
Þetta verður í síðasta sinn sem viðhaldsvinna verður nú um tíma.Enn í sumar stendur til viðhaldsvinna verði einhver í Árneshreppi það verður sagt frá því þegar þar að kemur,en það verður ekki á næstunni.
Rafmagnleysið í dag hefur ekki áhrif á Sparisjóðs Strandamanna á Norðurfirði í dag vegna þess að sparisjóðurinn er lokaður á miðvikudögum.Og Kaupfélagið einnig.