Fleiri fréttir

Jón G. Guðjónsson | fimmtudagurinn 17. mars 2011 Prenta

Raforkuöryggi á Vestfjörðum.

Orkuöryggi á Vestfjörðum.
Orkuöryggi á Vestfjörðum.
Á fundi stjórnar Fjórðungssambands Vestfirðinga þann 11. Mars s.l. var gerð eftirfarandi samþykkt varðandi nýútkomna skýrslu starfshóps Iðnaðarráðherra um „Orkuöryggi á Vestfjörðum - Áhrif á samkeppnisstöðu og atvinnuþróun"[1].  Skýrslan var kynnt að hálfu iðnaðarráðherra, orkumálastjóra og fulltrúa Landsnets á opnum fundum á Patreksfirði og Ísafirði þann 7. mars s.l.. 

Stjórn Fjórðungssambands Vestfirðinga lýsir ánægju með að skýrsla starfshóps iðnaðarráðherra sé nú loks komin fram og þeim tillögum sem þar eru fram settar. 

Stjórn leggur áherslu á, að nú er viðurkenndur sá vandi sem atvinnulíf og samfélög á Vestfjörðum hafa staðið frammi fyrir um áratuga skeið og þannig skaðað ímynd og samkeppnisstöðu svæðisins. Tekur stjórn undir tillögu starfshópsins að gefin verði afsláttur á kostnaði við flutning raforku á meðan þetta ástand varir. 

Stjórn leggur áherslu að hraðað verði gerð tímasettra áætlana er varðar uppbyggingu varaafls,  rannsóknum er varða nýja virkjakosti og hringtengingu flutningskerfis fyrir raforku og gagnaflutninga.  Auk þess leggur stjórn áherslu á gerð áætlunar á þrífösun rafmagns í dreifbýli. 

Formaður stjórnar Albertína F Elíasdóttir, veitir nánari upplýsingar í síma 8484256.


Athugasemdir

Atburðir

« 2024 »
« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Úr myndasafni

  • Súlan langa reyndist vera 18,5 metra löng.
  • Ólafur Thorarensen og Njáll Gunnarsson.
  • Gunnsteinn Gíslason.
  • Jón Guðbjörn og Guðrún smelltu af samtímis.Og þetta varð útkoma Jóns G.
  • Múlakot í Krossneslandi.
Vefumsjón