Fleiri fréttir

Jón G. Guðjónsson | miðvikudagurinn 6. nóvember 2013 Prenta

Rúllupylsukeppni.

Sævangur.Mynd Strandir.is
Sævangur.Mynd Strandir.is

Sauðfjársetur á Ströndum og Slow food samtökin á Íslandi halda Íslandsmeistaramót í rúllupylsugerð í Sauðfjársetrinu á Ströndum (Sævangi,12 km. sunnan við Hólmavík) laugardaginn 23. nóvember 2013 kl. 13:00. Þetta verður í annað skiptið sem keppnin er haldin. Árið 2012 var haldin keppni í Króksfjarðarnesi og þá fengu Strandamennirnir Matthías Lýðsson og Hafdís Sturlaugsdóttir í Húsavík, verðlaun fyrir léttreykta rúllupylsu. Rúllupylsuuppskriftir þekkjast úr fornum og nýjum uppskriftarbókum en líklegt er að margar og margvíslegar uppskriftir séu til á heimilum landmanna hver annarri betri.

Keppnisreglur:

Þátttakendur mega koma með eins margar gerðir rúllupylsa og þeir vilja.

Þátttakendur bjóða gestum að smakka á rúllupylsunum

Dómnefnd valinkunnugra matgæðinga og smakkara mun leggja dóm á lykt, áferð, bragð, framsetningu og frumleika.

Viðurkenningar verða veittar fyrir þrjú fyrstu sætin og einnig aukaverðlaun fyrir frumleika.

Þeim sem ekki eiga heimangengt með sínar rúllupylsur er bent á að þær má senda á Sauðfjársetrið og starfsmenn þess taka að sér að sjá um framsetningu og kynningu. Gott er að tilkynna þátttöku hjá Ester í síma: 8233324 eða á netfangið saudfjarsetur@strandir.is en ekki nauðsynlegt.

Athugasemdir

Atburðir

« 2026 »
« ágúst »
S M Þ M F F L
            1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 29
30 31          

Úr myndasafni

  • Spýtan og súlan eftir.
  • Hafís útaf Reykjanesströnd.
  • Ragna-Badda og Bía.
  • Hilmar og Gunnlaugur.08-11-08.
  • Allar stærri sperrur komnar á sinn stað.29-10-08.
Vefumsjón