Jón G. Guðjónsson | miðvikudagurinn 9. júní 2010
Prenta
Samkórinn Björk frá Blönduósi í söngferðalagi.
Samkórinn Björk verður á ferðinni um Strandir laugardaginn 12. júní næstkomandi. Mun hann halda tónleika í Árneskirkju í Árneshreppi kl. 14:00. Kórinn býður upp á fjölbreytta söngdagskrá. Verð á tónleikana er 1000.- Einnig munu diskar kórsins verða til sölu.