Fleiri fréttir

Jón G. Guðjónsson | mánudagurinn 13. desember 2010 Prenta

Seinni styrkúthlutun Menningarráðs Vestfjarða.

Styrkþegar í desember ásamt Jóni Jónssyni  Menningarfulltrúa..Mynd Brian Berg.
Styrkþegar í desember ásamt Jóni Jónssyni Menningarfulltrúa..Mynd Brian Berg.

Seinni styrkúthlutun Menningarráðs Vestfjarða á árinu 2010 fór fram við hátíðlega athöfn á Melrakkasetrinu í Súðavík þann 11. desember. Flutt var tónlist og haldin erindi, Melrakkasetrið kynnt og skoðað, auk þess sem styrkvilyrði voru afhent og að sjálfsögðu var boðið upp á kaffi og með því á eftir. Umsóknir sem komu til afgreiðslu það þessu sinni voru 78 talsins, en alls fengu 30 verkefni stuðning að upphæð 13.090.000.- samtals. Verkefnunum hefur þó fækkað um eitt, því einn styrkurinn var afþakkaður áður en til úthlutunar kom.
Þrjú verkefni fengu milljón í styrk að þessu sinni. Tvö þeirra snúast um samstarf við stofnanir á landsvísu og út fyrir landsteinana og stórar norrænar samkomur á Vestfjörðum á næsta ári. Annars vegar var þar styrkur til Þjóðbúningafélags Vestfjarða til að standa fyrir norrænum handverkssumarbúðum á Þingeyri og hins vegar til Félags sagnaþula til að standa fyrir norrænu sagnaþingi, einnig á Þingeyri. Þriðja verkefnið sem fékk milljón að þessu sinni var Skrímslasetrið á Bíldudal fyrir vinnu að öðrum áfanga í sýningu setursins. Menningarráð Vestfjarða auglýsir aftur eftir styrkumsóknum snemma á nýju ári og eru allir hvattir til að fara tímanlega að huga að spennandi verkefnum og áætlanagerð.
Eftirtaldir aðilar og verkefni fengu stuðning frá Menningarráði Vestfjarða í desember 2010.


Þjóðbúningafélag Vestfjarða: Norrænar handverkssumarbúðir á Þingeyri - 1.000.000
Félag sagnaþula: Norrænt sagnaþing á Þingeyri - 1.000.000
Félag áhugamanna um skrímslasetur: Uppbygging á öðrum hluta Skrímslasetursins, kafbátur og göng - 1.000.000
Kómedíuleikhúsið: Vestfirskur skáldskapur á 57 mín - 750.000
Félag áhugamanna um Bátasafn Breiðafjarðar: Uppsetning sýningar á Bátasafninu á Reykhólum í samstarfi við Minjasafnið á Hnjóti - 750.000
Fjölnir Már Baldursson: Búum til vestfirskt tungl - 600.000
Íþróttafélagið Höfrungur, leikdeild: Höfrungur á leiksviði - 600.000
Melrakkasetur Ísland: Efling sýningar Melrakkaseturs Íslands - 600.000
Smári Gunnarsson og Leikfélag Hólmavíkur: Skjaldbakan - 600.000
Menningarmiðstöðin Edinborg: Listviðburðir í Edinborgarhúsi - 600.000
Magnús Hávarðarson: Sönglagakeppni Vestfjarða 2011 - 600.000
Karl Ásgeirsson og Guðlaug Jónsdóttir: Veisla að vestan - vestfirsk matarmenning - 500.000
Félag um endurreisn listasafns Samúels Jónssonar í Selárdal: Sambahátíð - listahátíð til styrktar listasafni Samúels Jónssonar að Brautarholti í Selárdal - 500.000
Bláus Art ehf: Ferðin heim - 400.000
Þjóðfræðistofa: Húmorsþing - Vetrarhátíð á Ströndum - 300.000
Act alone: Vestfirska leikárið 2010-2011 - 300.000
Friðþjófur Þorsteinsson: Samantekt og úrvinnsla á tæknilegum upplýsingum fyrir ísfirsk menningar- og samkomuhús - 300.000
Páll Ernisson: Baráttan um Djúpið - Spil fyrir alla fjölskylduna - 300.000
Simbahöllin ehf: International residency of artists in Þingeyri 2011 - 300.000
Marsibil G. Kristjánsdóttir: Ein stök hús - 300.000
Minjasafn Egils Ólafssonar: Nútíminn verður til - 250.000
Magnús Hávarðarson: Úgáfa geisladisks með 14 lögum úr Sönglagakeppni Vestfjarða 2010 - 250.000
Tónlistarskóli Ísafjarðar: Árstíðir Vivaldis á Vestfjörðum - 200.000
Félag um Snjáfjallasetur: Kaldalónstónar - dagskrá á Hólmavík - 200.000
Magnús Óskarsson: Gerð leirmynda af skrímslasögum - 200.000
Malgorzata Lilja Nowak: Kórvilla á Vestfjörðum - 200.000
Skiptá, áhugamannafélag um menningu og listir: Tónleikahald á Vestfjörðum - 100.000
Rafn Hafliðason: Fjölskylduböndin - desemberuppbót - 70.000
Hafdís Ósk Gísladóttir: Fóður í firði, ljósmyndasýning og gjörningur - 70.000

Athugasemdir

Atburðir

« 2024 »
« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Úr myndasafni

  • Þá er síðasti flotinn fundinn út af Nestanganum.
  • Árnesey-06-08-2008.
  • Flatur ísjaki frekar lár sést frá Litlu-Ávík, er um það bil 5 til 6 Km austur af Sæluskeri Og um 20 Km frá landi. 13-06-2018.
  • Ein húseining hífð.27-10-08.
  • Húsið 29-10-08.
Vefumsjón