Símasamband og rafmagn úti.
Svona gekk þetta allt kvöldið að samband var inni og úti,einnig um morguninn þann 15 júní kl 06:00 þegar veðurathugunarmaðurinn í Litlu-Ávík ætlaði að senda veðurskeyti var allt úti sími og netsamband,var komið inn aftur um og fyrir 08:30.
Þann 16 júní datt allt net út seinniparts dags og símasamband úti annað slægið,og lítið var um svör í upplýsinganúmeri Símans 8007000,en samband hefur verið frá því um og uppúr kl 20:00 þá um kvöldið.
Í gær þann 17 júní hefur verið allt net og símar verið inni síðan,en þá fór rafmagn af í um 10 mínútur kl um 23:00 um kvöldið,ekki vissi starfsmaður Orkubús Vestfjarða á Hólmavík hvað hefði ollið þessum útslætti.
Nú verður eitthvað að fara að gerast í þessum málum að við hér á Ströndum og víðar á Vestfjörðum fáum hundrað prósent síma og fjarskiptaöryggi og líka rafmagnsöryggi á staðina.
Nú þarf formaður Sambands Íslenskra Sveitarfélaga að láta í sér heyra og láta hendur standa fram úr ermum og tala við þessa aðila um hvernig megi tryggja öryggi á þjónustu.