Jón G. Guðjónsson | þriðjudagurinn 18. september 2012
Prenta
Sjálfboðaliðar væru vel þegnir!
Á fimmtudaginn 20. og föstudaginn 21. verður smalað í Veiðileysu og sunnan Veiðileysu jafnvel allt inn að Kaldbaksvík fyrri daginn og fé rekið í Veiðuleysurétt og fé keyrt heim á tún bænda. Á föstudaginn verður smalað kringum Kamb og allt svæðið innan Kleifarár og fé rekið í Kjósarrétt og fé keyrt heim. Á þessu innsta svæði eru engar skiplagðar leitir og eru því sjálfboðaliðar vel þegnir þessa báða daga. Síðan eru seinni leitir næstkomandi laugardag 22. þar sem syðra leitarsvæðið er leitað allt frá Naustvíkurgili í vestri og Kleifarár í suðri og réttað í Kjósarrétt. Sjá nánar undir Fjárleitir 2012. hér til vinstri á vefnum.