Jón G. Guðjónsson | miðvikudagurinn 27. maí 2026
Prenta
Skipt um sjálfvirku veðurstöðina.
Veðurstofa Íslands lét skipta um sjálfvirku stöðina Í Litlu-Ávík. Í gær.
Menn frá Veðurstofu Íslands, þeir tæknimennirnir Jóhannes Andrésson og Hákon Halldórsson sem unnu verkið. Aðal breytingin er sú að núna geta tæknimenn Veðurstofunnar komist inná stöðina frá Reykjavík og gert við ef þarf og fylgst með stöðinni.





